Gleym-mér-ei

Myosotis arvensis

Lýsing

Blöð eru lensulaga og dragast niður í breiðan stilk; þau eru hvíthærð eins og stöngullinn, sem er uppréttur og marggreindur.

Blóm, oft mörg saman, eru með fremur smáar krónur (3 mm). Aldinleggir eru helmingi lengri en bikarinn.

Hún festist við ýmsan klæðnað sé henni þrýst að. Hugmyndin að frönskum rennilási (broddlási) er fengin af krókum plöntunnar.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt