Gulmaðra

Galium verum

Lýsing

Blöð mjóstriklaga, 6–12 í kransi, niðurbeygð á röndum, ydd og með broddi. Stöngull grófur, uppréttur, dúnhærður, sem greinist efst og er með fjórum listum. Skriðull jarðstöngull, rauður á lit.

Blóm í þéttum og blómmörgum skúfum, 2–4 mm að þvermáli; bikarblöð smávaxin. Ilmar mjög af kúmeni.

Nytjar

Te af blómunum gulmöðru þótti gott svitadrífandi meðal væri það drukkið heitt að kveldi. Duft af rót hennar og blöðum stemmir blóð úr sárum.

Rótina má nota til litunar, sjá krossmöðru.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
4 krónublöð
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Kransstæð
Blaðlögun
Mjó blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt