Augnfró

Euphrasia frigida

Lýsing

Blöð eru lensulaga eða egglaga með grófar, útstæðar tennur.

Blóm eru óregluleg (einsamhverf), lítil; neðri vör hvít með gulan blett, efri vör bláleit.

Nytjar

Sagt er, að jurtin hafi samdragandi , barkandi og styrkjandi kraft, sé magastyrkjandi og eyði slími. Plantan er þó einkum þekkt fyrir hve gott er að leggja volgt seyði af henni á vot og svíðandi augu. Hún er mjög áberandi í grasflötum í Reykjavík síðla sumars.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Hvítur
Blaðskipan
Gagnstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt