Lokasjóður

Rhinanthus minor

Lýsing

Blöð eru lensulaga, gagnstæð, stilklaus og gróftennt. Plantan er oft með móleitum blæ.

Blóm sitja í blaðöxlum, óregluleg (einsamhverf), í klasa á stöngul- eða greinaendum. Aldinin (peningarnir) eru kringlótt og gljáandi.

Nefnist líka peningagras því aldinin eru lík peningum.

Nytjar

Plantan er talin mýkjandi og því notuð við hósta, lifrarbólgu og niðurgangi.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Gagnstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt