Fjöruarfi
Honckenya peploides
Lýsing
Blöðin eru þykk, hárlaus, kjötkennd og sitja allþétt. Þau eru oddbaugótt eða egglaga og gagnstæð.Blómin sitja einstök eða í blómfáum skúfum. Plöntur eru annaðhvort karlkyns eða kvenkyns eftir því, hvor kynfæri, fræflar eða frævur, ná að þroskast. Í karlplöntum eru bikar- og krónublöð álíka löng, en í kvenblómum eru krónublöð mun styttri.
Nytjar
Varasamt þótti ef fé át of mikið af arfanum.Greiningarlykill
Blómskipan

Annað
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Hvítur
Blaðskipan

Gagnstæð
Blaðlögun

Venjuleg heil
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt