Bjöllulilja
Pyrola rotundifolia
Lýsing
Stofnstæð, þykk blöð nærri kringlótt, 1,5–3 cm að þvermáli, á álíka löngum stilk. Stöngull með fáein, móleit hreisturblöð, ferstrendur. Blóm eru opin og bjöllulaga. Stíllinn skagar út úr krónunni. Blóm sitja í gisnum klasa.Bjöllulilja líkist klukkublómi sem er mjög algengt.
Nytjar
Seyði af pl??ntunni var notað til lækninga, m.a. við ýmsum húðsjúkdómum og augnbólgum. Te af blöðunum þótti gott við brjóstveiki, blöðrusjúkdómum og til þess að stilla tíðir kvenna.Greiningarlykill
Blómskipan

Klasi/ax
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Hvítur
Blaðskipan

Stofnhvirfing
Blaðlögun

Venjuleg heil
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt