Eyrarós

Epilobium latifolium

Lýsing

Blöðin eru gagnstæð, þykk, blágræn, gistennt og oft dúnhærð. Upp af jarðstöngli vaxa margir, smádúnhærðir og blaðmargir stönglar.

Blóm eru stór, 3–4 cm að þvermáli, 4-deild. Bikarblöðin eru dökkrauðblá og hin stóru krónublöð ljósrauð. Hýðið er gilt og myglugrátt.

Nytjar

Fræull eyrarrósar má nota til að stoppa í föt, spinna úr henni eða hafa í kveiki. Marin blöðin voru lögð yfir opin sár. Seyðið af henni læknar höfuðverk og stillir blóðnasir.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
4 krónublöð
Blómlitur
Rauðleitur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt