• Sandlóa

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Sandlóa – ungfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Sandlóa er með minnstu vaðfuglum hér, álíka stór og sendlingur og lóuþræll, og er hálsstutt og fremur kubbslega vaxin. Hún er grábrún að ofan en hvít að neðan, á sumrin með hvítan kraga um hálsinn og svart belti þar fyrir neðan, einnig svarta grímu um augu en er hvít á enni. Hún hefur hvít vængbelti sem sjást vel á flugi. Stél og gumpur eru dökk með hvítum jöðrum. Ungfugl og fullorðin sandlóa í vetrarbúningi eru litdaufari, ungfuglar með ljósum fjaðrajöðrum að ofan („hreistraðir“), bæði með grábrúna grímu og bringubelti.

Þessi litli fugl er fjörlegur og kvikur. Hann er vænglangur og flýgur yfirleitt hratt og lágt og með reglulegu vængjablaki. Fremur félagslyndur utan varptíma.


Fæða og fæðuhættir:
Tínir skordýr og orma af jörðinni eða úr fjörum, t.d. þangflugulirfur, doppur, mýlirfur og marflær. Við fæðunám mjög kvik, hleypur um og skimar eftir æti, stoppar hremmir bráðina og svo rokin af stað aftur.


Fræðiheiti: Charadrius hiaticula

Kjörlendi og varpstöðvar

Sandlóa heldur sig einkum á sendnu landi og í möl, bæði við sjó og á melum og áreyrum inn til landsins. Hreiðrið er dæld í möl eða sand, óhulið, fóðrað með smásteinum og skeljabrotum. Dvelur utan varptíma á leirum og í sandfjörum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Sandlóa er farfugl. Hún verpur dreift um land allt en er algengust við sjóinn. Stórir hópar fugla sem verpa á Grænlandi fara hér um vor og haust. Vetrarstöðvar eru á Bretlandseyjum, í Vestur- og Suðvestur-Evrópu (Frakklandi og Pýreneaskaga) og Vestur-Afríku. Um fjórðungur af heimsstofni sandlóu verpur hér á landi. Sandlóan verpur auk þess í Norður-Evrópu og Síberíu allt austur að Beringssundi og Norðaustur-Kanada.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR