• Toppskarfur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Fullorðinn og tveir fullvaxnir ungar

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Þrír fullorðnir og tveir ungar

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Toppskarfur er nokkru minni og grennri en dílaskarfur. Hálsinn er styttri og grennri og höfuðið minna, en annars getur verið erfitt að greina þessa fugla sundur eftir stærð og vexti nema sjá þá saman. Höfuð toppskarfs er hnöttóttara, enni brattara og goggur áberandi grennri en á dílaskarfi. Í varpbúningi er toppskarfur alsvartur með grænleitri slikju. Virðist hreistraður að ofan vegna dökkra fjaðrajaðra. Uppsveigður fjaðratoppur á höfði er einkenni fullorðinna fugla frá því í janúar fram á vor. Ungfugl er dökkbrúnn, með ljósan framháls, en ekki ljósleitur á bringu og kviði eins og ungir dílaskarfar. Kynin eru eins.

Toppskarfur er djúpsyndur og ber höfuðið hátt á sundi eins og dílaskarfur. Eftir köfun þarf toppskarfur að þurrka vængina og situr þá oft og blakar þeim, ,,messar" eins og dílaskarfur, en breiðir ekki jafn mikið úr vængjunum. Hann er fremur klaufalegur þegar hann hefur sig á loft, flýgur með hraðari vængjatökum en dílaskarfur og teygir hálsinn og gogginn ekki upp eins og hann, flýgur fremur lágt. Er venjulega félagslyndur.


Fæða og fæðuhættir:
Fiskiæta, kafar eftir bráðinni, fangar m.a. sandsíli, síld, marhnút, þorsk, ufsa og sprettfisk. Stingur sér á sundi og kafar með fótunum.


Fræðiheiti: Phalacrocorax aristotelis

Kjörlendi og varpstöðvar

Heldur sig við strendur og sést nær aldrei inn til landsins eins og dílaskarfurinn. Verpur í byggðum, er algengastur á lágum eyjum eða hólmum í Breiðafirði og Faxaflóa. Er einnig í lágum klettum, stundum í fuglabjörgum eða í stórgrýtisurðum. Hreiðrinu svipar til dílaskarfshreiðurs.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Toppskarfur er staðfugl, sem sést víða um vestanvert landið á veturna. Hann hefur breiðst út um Strandir á undanförnum árum og er nú farinn að verpa í Papey. Hann verpur við strendur Evrópu, frá Kólaskaga suður í Miðjarðarhaf og til Marokkó.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR