• Snjótittlingur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Vetur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Karlfugl - sumar (sólskríkja)

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Snjótittlingur að vetri til

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Karlfugl - sumar (sólskríkja)

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Nýfleygur ungi

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Snjótittlingurinn er einkennisspörfugl á auðnum og í fjalllendi. Er fremur lítill spörfugl, á stærð við steindepil. Karlfugl í sumarbúningi, sólskríkjan, er snjóhvítur, nema svartur á baki, axlarfjöðrum og vængbroddum, á veturna líkist hann kvenfugli. Á sumrin er kvenfuglinn ljósbrúnn, ljósari að neðan, með dökkt bak og yfirvængi með ljósum vængbeltum, svipuð en dauflitari á veturna. Er með rauðbrúnar kámur á höfði og bringuhliðum. Nýfleygir ungar eru allir gráleitir og án vængbelta. Annars eru hvítir vængreitir áberandi árið um kring á fljúgandi fuglum.

Flug snjótittlings er hratt og bylgjótt. Hann tyllir sér á steina, þök og víðar, þó sjaldan í tré. Er afar félagslyndur á veturna en á sumrin eru pör eða fjölskyldur saman.


Fæða og fæðuhættir:
Frææta, tekur melfræ og annað grasfræ, einnig ber. Á sumrin eru skordýr og áttfætlur mikilvæg og aðalfæða unganna. Sækja í kornmeti, svo sem hveitikorn, kurlaðan maís og brauðmola, sem lagðir eru út fyrir þá á vetrum. Kornakrar, sérstaklega óslegnir, eru gnægtabúr á veturna.


Fræðiheiti: Plectrophenax nivalis

Kjörlendi og varpstöðvar

Verpur í grýttu landi og klettum við ströndina, svo og í eyjum. Er algengur til fjalla og á hálendinu en strjáll milli fjalls og fjöru. Hreiðrið er vandlega ofin karfa í glufu eða sprungu í bergi, eða í hlöðnum vegg. Verpur oft tvisvar á sumri. Á veturna er hann bæði við ströndina og inn til landsins, oft í stórhópum við mannabústaði.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Snjótittlingurinn er að nokkru farfugl. Hluti stofnsins hefur vetursetu í Skotlandi og grænlenskir fuglar eru far- og vetrargestir hér. Verpur annars á Norðurlöndum og víðar í löndunum umhverfis Norður-Íshafið. Snjótittlingur er norðlægasti spörfuglinn á jörðinni.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

UNGAR