• Æðarfugl

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Æðarbliki

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Ungur bliki (veturliði)

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Æðarkolla

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Æðarbliki

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Æðarblikar í felli

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Æðarfugl er stór kafönd sem heldur sig nær eingöngu á og við sjó og er algengasta önd landsins. Æður er breiðvaxin með stórt aflangt höfuð og stutt stél. Fullorðinn bliki er auðþekktur, hvítur að ofan og svartur að neðan, með svarta kollhettu, ljósgræna flekki á hnakka og roðlitaða bringu. Vængir eru svartir með hvítum framfjöðrum og löngum hvítum axlafjöðrum. Hvítur blettur er á hliðum undirgumps. Bliki á fyrsta vetri er dökkbrúnn með ljósari bringu og axlafjaðrir, hann kallast veturliði. Hann lýsist síðan smátt og smátt á höfði og að ofan, er á öðrum vetri eins og flekkóttur fullorðinn bliki. Í felubúningi er bliki svipaður og ungfugl en allur dekkri, líka á bringu. Fullorðin kolla er dökkbrún, þverrákótt að neðan en dökkflikrótt að ofan, fínrákótt á höfði og hálsi og er þetta eina öndin með þess konar litamynstur. Vængspeglar eru ógreinilegir. Ung kolla er mun dekkri og jafnlitari.

Æðarfuglinn er fremur þungur á sér á flugi og flýgur beint, hratt og lágt yfir ölduföldunum. Er þungur til flugs en afbragðs kafari. Gengur reistur og vaggandi. Er ávallt félagslyndur og oftast spakur. Hljóð blikans á vorin, „úið“, er eitt af einkennishljóðum vorsins á Íslandi.


Fæða og fæðuhættir:
Fjölbreytt fæða úr dýraríkinu, sem fuglinn kafar eftir á grunnsævi. Kræklingur er mikið etinn, einnig aðrar samlokur, sæsniglar, burstaormar, krossfiskar og krabbadýr. Þegar loðnu er landað sækja fuglarnir í hrognin í höfnum og einnig í annan fiskúrgang.


Fræðiheiti: Somateria mollissima

Kjörlendi og varpstöðvar

Æðarfuglinn er sjófugl, einnig á varptíma, en slæðingur verpur við ár og vötn, allt að 40 km flugleið frá sjó. Það er við Úlfljótsvatn, en fuglinn fylgir ánum á varpstöðvarnar. Hann verpur í byggðum, oft stórum og þéttum, í hólmum eða þar sem hann nýtur verndar. Hreiðrið er opið, fóðrað með hinum verðmæta dúni og oftast staðsett við einhverja mishæð eða í manngerðum varphólfum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Æðurin er staðfugl. Hún er oft í stórum hópum, t.d. fella allt að 200.000 blikar við Faxaflóa og stórir hópar fylgja loðnugöngum á útmánuðum. Hér við land eru auk þess vetrarstöðvar og fellistöðvar fugla frá Austur-Grænlandi. Æðurin verpur annars við stendur landanna umhverfis norðurheimskautið.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR