Flyðrumóðirin
Flyðrumóðirin er talin voðagestur mikill þó
ekki sé mönnum kunnug hryðjuverk hennar. Séra Jón
Norðmann segir svo: " Frá því var mér
sagt vestra að einhvern tíma ekki alls fyrir löngu var
maður við fisk og kom í mikið heilagfiski. Það
var á fertugu djúpi. Dró hann þá fyrst
eintómar smálúður, svo smástækkuðu
sprökurnar og grynnti um leið uns hann dró stórlúður
á 10 faðma djúpi. Þorði hann þá
ekki að haldast þar lengur við, því hann þóttist
vita að þar mundi vera undir flyðrumóðir með
fjölskyldu sinni sem hann hefði dregið svo margt af um daginn,
en hún mundi valda því að svo mjög grynnti
á færinu. Það er líklegt þó
ekki viti ég sögur um það að heilagfiskið
fengið það nafn sitt af sankti Pétri sem var svo
voldugur fiskimaður." |
||