Var þá komið kvöld og fór einn þeirra upp á glugga og kallaði inn: ,,Hvað étur kötturinn?“ Maðurinn svarar í grannleysi: ,,Bölvaður kötturinn étur allt.“ Með það fóru þeir bræður heim, en fóru að hugsa um þetta betur að kötturinn æti allt. Þá segir einn þeirra: ,,Bölvaður kötturinn étur allt og hann bróður minn líka,“ og svo sagði hver þeirra um sig.

Þjóðsögur Jóns Árnasonar