Ég veit um konu og kött
sem komust út í hött.
Þau flækjast furðubrött
í ferð um okkar hnött.
Köttur og kona.
þau kunna að vona,
en það er nú svona og svona.

Hún á víst engan mann
og ekkert nema þann
kött sem fjölmargt kann
og kallar oft á hann.
Köttur og kona …

Ég hlustaði eitt sinn á,
hún æpti á köttinn: – Mjá!
Þá fór hann strax á stjá
og stilltur mælti: – Já?
Köttur og kona …
Svo í sundi í gær
ég sá þau miklu nær:
OG KONAN VAR MEÐ KLÆR
EN KÖTTURINN MEÐ TÆR.
Köttur og kona …


Þórarinn Eldjárn