Hænan sagði við hundinn:
Hve hefur þú fallegt skott.
Hundurinn starði á stélið:
Þitt stél er nú líka flott.

– Þá skulum við bara skipta!
Og skiptin, þau gengu vel.
Hænan nú hringar skottið.
Hundurinn sperrir stél.


Kristján frá Djúpalæk