Já, húsið þeirra, hið háa slot,
hét á Hofi,
þótt mörgum sýndist það mesta kot
og moldarkofi.
Þau áttu þar marga kind og kú,
en Kátur var þeirra eina hjú.
Þar á Hofi.

En illt var snemma að aga Kát,
anga flónið,
því bæði kindur og kýr hann át,
anga flónið.
Þótt Bjössi reiddist og byrsti sig,
hann bara góndi og hristi sig,
anga flónið..



Stefán Jónsson