Pabbi hann sendi hann Sigga út að Bakka.
Siggi svo glaður í hjartanu varð.
Heim undir túnið er var hann að vakka,
Vaskur kom hlaupandi út fyrir garð.
Voff – voff – voff – segir Vaskur á Bakka.
Honum er illa við ókunna krakka,
en aumingja Siggi fór grátandi heim.

Stefán Jónsson