Niðri í bæ var gömul geit
sem gekk þar teit í leit að beit.
Fann hún grænan gróðurreit.
grasið sleit og beit spikfeit..
Löggan kom í hamsi heit:.
– Heyrðu geit, þú ert úr sveit..
Geitin sagði sár: – Ég veit..
Síðasta stráið beit. Og skeit.
Þórarinn Eldjárn