Hvað er handa góðum gesti
glaðningur allra mesti?

Handa Þórði pokapresti
er pokate sá allra besti.

Handa Láru lestrarhesti
ljóðabók á korters fresti.

Handa Skúla skógarþresti
skyrta buxur jakki og vesti.

Handa Jóni hrossabresti
handbókin um kosti og lesti.

Handa Björk sem blekið klessti
bilað úr í gylltri festi.

Handa Ösp sem augun hvessti
átján blóm og tvö í nesti.

Þórarinn Eldjárn