Litla gula hænan, ég hélt hún væri best
heiðarleg og fórnfús, greind og klár.
Ég hélt að henni væri til lista lagið flest
og leitaði til hennar snemma í ár.

Símaskrána tók ég, og segi reyndar það
að sambandi mér virtist létt að ná
því númer hennar fann ég á fleiri en einum stað
ég fann það undir L og G og H.

Litla gula hænan, ég hringdi í hana þá
og hélt hún yrði síst af öllu treg.
En mér sannarlega brá því símsvarinn var á
og þar sagði hún hranalega: EKKI ÉG!

Þórarinn Eldjárn