Einn dag sagði haninn: – Gaggalagó!
Þó gögguðu hænurnar: – Hvað?
Þá svaraði haninn: – Sabbaladó!
Þær sögðu á móti: – Nú bara það!

Svo næst þegar haninn kvað gaggalagó
gæsahúð allar þær fengu.
Og þegar hann sagði sabbaladó
þær svöruðu hreinlega engu.

Þórarinn Eldjárn