Komdu, kisa mín,
kló er falleg þín
og grátt þitt gamla trýn.
Mikið malar þú,
mér það líkar nú,
víst ertu vænsta hjú.
Banar margri mús,
mitt þú friðar hús.
Ekki er í þér lús,
oft þú spilar brús.
Undrasniðug, létt og liðug,
leikur bæði snör og fús.
Við skulum drekka dús!