Það er gata, það er hús,
Það er maður inni.
Það er veggur, það er mús
Þar í holu sinni.

Maðurinn er Maron Briem
músasérfræðingur.
Músin heitir Hulda Sím,
hún er mannfræðingur.

Út að skoða merkan mann,
Músin stefnir þangað.
Inn í músarholu hann


Þórarinn Eldjárn