Horfumst við í augu,
sem grámyglur tvær.
Sú skal vera músin sem mælir,
kötturinn sem sig skælir,
fíflið sem fyrr hlær,
folaldið sem fyrr lítur undan
og skrímslið sem skína lætur í tennurnar.