Um vefinn
Aðrir greiningalyklar

Í vatninu á sundi - Vatnaskordýr > Brunnklukka


Ljósmynd

Teikning

Lýsing

Brunnklukkur eru meðalstórar bjöllur, ýmist svartar eða brúnar á lit, Aftasta fótaparið er ummyndað í sterklega, hærða sundfætur og eru brunnklukkur afar fljótar í förum í vatninu. Bolurinn er egglaga með stífa skjaldvængi sem þekja hann allan. Höfuðið er fremur lítið en augun og fálmararnir nokkuð áberandi. Lirfa brunnklukkunnar kallast vatnsköttur og er jafnvel enn þá stærri en fullorðna brunnklukkan. Vatnskötturinn er langur og sívalur með áberandi liðskiptan bol, nokkuð stórt höfuð og afar kröftuga kjálka. Hann er oftast brúnn á lit.

Búsvæði

Bæði fullorðnar brunnklukkur og vatnskettir lifa í fersku, kyrru vatni, einkum lygnum tjörnum og grunnum stöðuvötnum þar sem er nægur gróður og mikið af dýrasvifi. Skyld tegund, Grænlandsklukka, er algeng í tjörnum á hálendinu. Hún er enn stærri en brunnklukkan.

Fæða

Brunnklukkur og vatnskettir eru hvort tveggja skæð rándýr sem veiða smærri dýr í vatninu svo sem vatnaflær og mýlirfur.

Annað

Brunnklukkur hafa ekki tálkn og fara upp á yfirborðið til að anda. Þær geta geymt súrefni inni í loftbólu sem hangir aftast á bolnum og er mjög áberandi þegar brunnklukkurnar eru á sundi.