Um vefinn
Aðrir greiningalyklar

Í vatninu á botninum - Vatnaskordýr > Rykmýslirfa


Ljósmynd

Teikning

Lýsing

Lirfur rykmýs eru langar og mjóar með áberandi höfuð sem er gjarnan dekkra á lit. Lirfunar eru gjarnan fölleitar eða brúnar en ekki er óalgengt að sjá eldrauðar rykmýslirfur.

Búsvæði

Rykmý finnst víða en þó fyrst og fremst í námunda við vatn þar sem flugurnar verpa eggjum í stillt vatn, einkum tjarnir og stöðuvötn. Rykmýslirfur finnast í flestum næringarríkum vötnum. Þar geta milljónir mýlirfa þrifist og þegar þær yfirgefa vatnið sem fullvaxnar flugur má gjarnan sjá stóra mýstróka með hundruðum þúsunda einstaklinga. Besti staðurinn til að sjá slíka stróka er við Mývatn þar sem þéttleiki rykmýs er mestur á Íslandi.

Fæða

Misjafnt er eftir tegundum hvað lirfurnar éta. Sumar eru rándýr og éta ýmis smádýr, aðrar éta þörunga og enn aðrar grot, en svo nefnast lífrænar leifar sem setjast fyrir á botni vatna. Sjálft er rykmýið afar mikilvæg fæða fyrir önnur dýr, einkum og sér í lagi lirfurnar og púpurnar sem eru undirstöðufæða margra ferskvatnsfiska- og vatnafuglastofna hérlendis.