Um vefinn
Aðrir greiningalyklar

Í vatninu á botninum - Vatnaskordýr > Vorflugulirfa


Ljósmynd

Teikning

Lýsing

Lirfur vorflugna lifa í fersku vatni. Þær hafa nokkuð stórt höfuð en fremur væskilslegan búk enda búa þær sér til hýði sem þær dvelja í. Hýðið getur verið úr plöntuleifum, sandi eða jafnvel litlum steinvölum. Það virkar eins og rekakkeri á botninum. Hýðið virkar einnig vel sem felubúningur. Lirfurnar eru misstórar eftir aldri og tegund. Þær stærstu verða um 2 sm.

Búsvæði

Vorflugur finnast einkum nálægt lygnu straumvatni eða tjörnum þar sem þær verpa eggjum í vatnið og dvelja lirfurnar öllum stundum í vatninu, yfirleitt á botninum.

Fæða

Vorflugulirfur éta að mestu smáar fæðuagnir, bæði þörunga og rotnandi efni. Sumar lirfur lifa á öðrum smádýrum.