Blálilja
Mertensia maritima
Lýsing
Blöð og stönglar eru bládöggvuð eins og algengt er meðal plantna sem vaxa við háan saltstyrk við strendur. Þau eru þykk og vörtótt en breytileg að lögun.Blóm eru í klösum. Krónan er í fyrstu ljósrauðleit með bláum æðum en verður síðan blá.
Nytjar
Plantan var talin styrkjandi og nærandi og því ráð við hjartveiki og brjóstveiki. Séu ræturnar stappaðar og soðnar í mjólk þykja þær holl og góð fæða.Greiningarlykill
Blómskipan
![](icon/A6.png)
Annað
Blómkróna
![](icon/B3.png)
5 krónublöð
Blómlitur
![](icon/C1.png)
Blár
Blaðskipan
![](icon/D4.png)
Stakstæð
Blaðlögun
![](icon/E1.png)
Venjuleg heil
Blaðstrengir
![](icon/F2.png)
Fjaðurstrengjótt