Alaskalúpína

Lupinus nootkatensis

Lýsing

Blöð eru fingruð á löngum stilk. Þau eru lítið eitt hærð eins og stilkurinn.

Blóm eru óregluleg (einsamhverf), blá eða fjólublá. Þau sitja í 20 til 30 cm löngum klasa.

Fræ þroskast inni í belg, sem er loðinn í fyrstu. Hann er myndaður úr frævunni.

Alaskalúpína er ræktuð planta sem flutt var 1945 til Íslands frá Alaska. Á rótum hennar eru bakteríur (gerlar), sem vinna nitur (köfnunarefni) úr andrúmslofti. Nokkrar deilur hafa staðið um ræktun hennar.

Nytjar

Seyði af henni er gefið krabbameinssjúklingum.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt