Hárdepla

Veronica officinalis

Lýsing

Blöð stilkstutt, egglaga til oddbaugótt, tennt, meira eða minna hærð, grágræn. Með skriðulum, rótskeytum stöngli, sem sveigir greinarnar upp.

Blómin sitja í þéttum klösum upp úr blaðöxlum. Leggir efstu blóma mjög stuttir og aldrei lengri en bikarinn. Ljós- eða fjólublá 6 mm breið króna með dökkum æðum.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt