Lyfjagras

Pinguicula vulgaris

Lýsing

Gulgræn og slímug blöð sitja fast niðri við jörð. Skordýr festast í þeim og meltast þar. Frá blöðum vex 6–15 cm langur, blaðlaus leggur og ber blátt, óreglulegt blóm með spora.

Nytjar

Lyfjagras var áður notað til að hleypa mjólk til skyrgerðar.

Smyrsl af plöntunni var notað við útbrotum, bólgu, sprungum og gömlum sárum. Seyði af blö??unum var talið gott til þess að hreinsa höfuð og styrkja hársvörð til varnar skalla.

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Stofnhvirfing
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Bogstrengjótt