Músareyra

Cerastium alpinum

Lýsing

Blöðin eru oft svo þéttstæð, að þau virðast standa í hálfgerðum hvirfingum á sprotaendum. Þau eru egglaga eða oddbaugótt. Tegundin er mjög breytileg en oftast alklædd ljósum og mjúkum hárum.

Blóm eru 1–4 á hverjum sprota. Krónublöðin um helmingi lengri en bikarblöð, klofin í endann.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Hvítur
Blaðskipan
Gagnstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt