Skriðsóley

Ranunculus repens

Lýsing

Blöð eru bæði frá stofni og stöngli. Þau eru stilklöng, nema efstu stöngulblöð. Blaðka er þrífingruð. Smáblöðin eru jafnan legglöng. Miðflipi á endasmáblaði er með stilk. Stöngull er jarðlægur og skýtur rótum (repens þýðir skríðandi).

Blóm eru 1,5–2,5 cm að þvermáli. Blómkrónan er yfirleitt heldur smærri en á brennisóley.

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Handstrengjótt