Steindepla

Veronica fruticans

Lýsing

Blöðin öfugegglaga eða oddbaugótt, snubbótt, nokkuð þétt í sér og þurrkennd. Jarðstöngull og neðsti hluti stönguls trékenndur, plantan er því svo kallaður hálfrunni.

Blóm eru stór, legglöng, fagurblá og útbreidd (10 mm á breidd) í hálfsveip á stöngulenda. Frjóhnappar hvítir. Til er tilbrigði með rauðum blómum.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Gagnstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt