Hjartarfi

Capsella bursa-pastoris

Lýsing

Stofnblöðin eru stilkuð í hvirfingu en stöngulblöðin stilklaus og greipfætt. Þau eru mjög breytileg að gerð.

Blóm í klösum. Krónublöð styttri en bikarblöð. Jurtin er auðþekkt á skálpunum, sem eru þríhyrndir og öfughjartlaga.

Nytjar

Í gömlum lækningabókum er plantan sögð blóðstillandi og stöðva blóðnasir og tíðablæðingar. Einnig var hún notuð til að stöðva blæðingar eftir fæðingu. Nöfnin blóðarfi, blóðgras og blóðjurt benda til þess. Seyði af jurtinni skal drekka kalt.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
4 krónublöð
Blómlitur
Hvítur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Sepótt/Flipótt blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt