Holtasóley

Dryas octopetala

Lýsing

Blöðin eru skinnkennd, sígræn, niðurorpin á röndum, gljáandi og dökkgræn en hvítlóhærð á neðra borði. Plantan myndar flatar þúfur með trékennda stöngla.

Blómin standa á mjúkhærðum leggjum. Krónublöðin eru átta.

Aldinið er með löngum svifhala.

Nytjar

Blöðin eru mikilvæg fæða rjúpunnar og kallast rjúpnalauf. Te af blöðunum þykir gott.

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
6 eða fleiri
Blómlitur
Hvítur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Sepótt/Flipótt blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt