Ljónslappi(-löpp)

Alchemilla alpina

Lýsing

Blöðin eru 5–7 fingruð. Smáblöðin heilrend, nema rétt í oddinn, og silkihærð á neðra borði.

Blóm hafa engin krónublöð heldur tvöfaldan bikar, 4 bikarblöð og 4 utanbikarblöð. Blómin sitja í smáskúfum.

Nytjar

Sleppa má út fé, þegar blöðin eru farin að breiða úr sér að vori.

Jurtin var notuð til þess að græða sár og skurði og stöðva niðurgang, blóðsótt og blóðlát. Nafnið kverkagras er komið til af því að gott þótti að skola hálsinn með volgu seyði af blöðum hans.

Greiningarlykill


Blómskipan
Annað
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Annað
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Handstrengjótt