Tágamura

Potentilla anserina

Lýsing

Blöð eru stakfjöðruð með 5–12 blaðflipapör; smáblöðin eru stórtennt og silfurhvítgljáandi á neðra borði, lensulaga eða öfugegglaga. Stöngullinn er jarðlægur og kallast murutágar; hann skýtur rótum með löngum millibilum.

Blómin standa einstök á uppsveigðum, mjúkhærður leggjum. Bikarinn tvöfaldur.

Nytjar

Tágamura er gömul og víðkunnug lækningaplanta og voru allir hlutar hennar notaðir, rætur, stönglar, blöð og fræ.

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt