Týsfjóla

Viola canina

Lýsing

Blöðin eru þykk, egg- eða hjartalaga og oftast snubbótt. Með stór axlablöð. Jarðstöngullinn er greindur, liðalangur og blaðleifalaus. Stönglarnir vaxa í beinu framhaldi af honum en eru oft lágir og lítt þroskaðir.

Blóm eru óregluleg (einsamhverf) og sitja á löngum legg.

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Blár
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt