HÁFUR
Squalus acanthias
Háfurinn er oftast 60 til 90 cm langur en getur orðið meira en 100 á lengd. Hann er straumlínulaga, með lítinn haus og frammjóa, lítið eitt flata trjónu. Hann er með lítinn kjaft en fremur stórar og beittar tennur. Hann hefur tvo bakugga, annan á miðju baki og hinn ofan á stirtlu og eru greinilegir gaddar á þeim framanverðum. Eyruggar eru þríhyrndir og fremur stórir.
Háfurinn er dökkgrár að ofan og á hliðum og ljósgrár á kvið. Á hliðum er greinileg rák og ljósir dílar.
Háfur finnst í sjónum allt í kringum Ísland en er algengastur við suður- og vesturströndina Hann lifir frá 10 m dýpi niður á 900 m dýpi. Hann heldur sig á djúpinu yfir veturinn en gengur upp í grynnri sjó á sumrin.
Háfur lifir á tempruðum og kaldtempruðum svæðum í Atlantshafi og Kyrrahafi bæði á norður- og suðurhveli. Hann finnst hins vegar ekki í hitabeltinu.
Háfurinn fæðir lifandi unga sem líkjast foreldrunum í útliti þegar þeir fæðast. Í hverju goti fæðast oftast 5 til 6 ungar. Þegar ungarnir fæðast eru þeir 22 til 33 cm. Mökun hjá háfnum fer fram á veturna og þroskast fóstrið í hrygnunni í 18 til 24 mánuði áður en hún gýtur. Hrygnan gýtur að vori eða sumri.