Brönugras
Dacthylorizha maculata
Lýsing
Blöð eru svartflekkótt, 3–8 að tölu, grágræn á neðra borði. Efstu blöð háblaðkennd og mjó.Blóm eru óregluleg í purpurarauðum, sívölum klasa. Blómhlíf er jafnan fjólublá, með dökkrauðum dröfnum og rákum. Stærsta krónublaðið vísar niður og myndar þríflipaða vör. Breytileg tegund.
Nytjar
Tveir hnúðar eru á rótum plantna af brönugrasaætt og geyma þeir forðanæringu fyrir plöntuna. Þessir hnúðar minna á eistu og hafa fram á þennan dag verið notuð til að örva ástir manna. Í Hálfdánarsögu Brönufóstra er sagt frá því að tröllkonan Brana gaf fóstra sínum grösin til að vekja ástir konungsdóttur og er nafnið brönugras dregið af því.Greiningarlykill
Blómskipan

Klasi/ax
Blómkróna

Annað
Blómlitur

Rauðleitur
Blaðskipan

Stakstæð
Blaðlögun

Venjuleg heil
Blaðstrengir

Bogstrengjótt