Horblaðka
Menyanthes trifoliata
Lýsing
Blöð á löngum stilk, þrífingruð, vaxa upp af gildum og löngum jarðstöngli, sem flýtur á vatni eða liggur laus ofan á mosa í mýrum.Blómin fá en þétt í klasa á háum, skástæðum og blaðlausum blómstöngli.
Nytjar
Hún þykir góð við skyrbjúgi, gulu, miltis- og lifrarveiki o.fl. Búið er til seyði eða te af rótum og blöðum. Horblaðka þótti góð til hárþvotta og með njóla er te af henni gott við harðlífi.Greiningarlykill
Blómskipan

Klasi/ax
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Hvítur
Blaðskipan

Stakstæð
Blaðlögun

Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt