Kornsúra
Bistorta vivipara
Lýsing
Blöð eru aflöng, heilrend, græn á efra borði en blágrá á hinu neðra.Blóm eru í axi, blómhlífin er hvít eða rauðleit. Viðurnafnið vivipara, en svo kallast sá sem fæðir lifandi unga, vísar til blaðgróinna æxlikorna, einkum neðst á axinu, sem smáblöð spretta út úr meðan þau eru á plöntunni.
Nytjar
Kornsúra myndar æxlikorn. Þau voru áður fyrr höfð til matar. Jarðstöngullinn er sætur á bragðið og sækja gæsir í hann.Seyði af rótinni var talið blóðstillandi og það læknar niðurgang (kveisugras).
Greiningarlykill
                  Blómskipan
                      
 
                      
				
                Klasi/ax
                  
 Blómkróna				
		              
		              
		
              5 krónublöð
               	
 Blómlitur			  
		              
		               
			
		     Hvítur
               
			  Blaðskipan
		                
		                
	
		    Stakstæð
             	
		 Blaðlögun			
		                
		               
		  
		  Mjó blöð
           
		   	 Blaðstrengir
		                
		                
   
 Fjaðurstrengjótt	
             
