Krossmaðra
Galium boreale
Lýsing
Blöð eru 4 saman í kransi, striklensulaga, venjulega breiðust að neðan; oftast tvö lengri og breiðari og tvö mjórri og styttri. Stöngull ferstrendur. Plantan er öll hárlaus. Jarðstöngull er mjór, langur, marggreinóttur og klæddur rauðbrúnum berki.Blóm eru mörg saman í marggreindum skipunum og ilma þau mjög.
Nytjar
Rót krossmöðrunnar er notuð til að lita rautt, enda er hún náskyld krapprótinni frá Austurlöndum sem er mjög kunn sem litagjafi. Rauði liturinn verður einkar fagur sé bandið áður litað gult.Greiningarlykill
Blómskipan

Annað
Blómkróna

4 krónublöð
Blómlitur

Hvítur
Blaðskipan

Kransstæð
Blaðlögun

Mjó blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt