Melasól
Papaver radicatum
Lýsing
Blöðin mynda stofnhvirfingu, eru stilkuð, grágræn og fjaðurskipt, með sepótta blaðhluta. Stöngull ber eitt endastætt stórt blóm. Plantan er öll hærð.Blóm stór, allt að 3 cm að þvermáli. Krónublöðin eru fjögur og falla burt hreyfi vind að ráði. Þau eru oftast brennisteinsgul en geta á stundum verið hvít eða ljósrauð. Bikarblöðin eru stór og aðeins tvö og detta af um leið og plantan blómgast.
Nytjar
Hún var talin góð við svefnleysi, stríðum verkjum og sinateygjum.Greiningarlykill
Blómskipan

Einstakt blóm
Blómkróna

4 krónublöð
Blómlitur

Gulur
Blaðskipan

Stofnhvirfing
Blaðlögun

Sepótt/Flipótt blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt