Njóli (heimula)
Rumex longifolius
Lýsing
Blöðin eru bæði löng og breið, stilkuð og breiðlensulaga. Við blaðfót er slímkennt slíður. Stöngull er hár, uppréttur, gáróttur, stinnur og trénast með aldrinum.Blóm í þéttum og blómmörgum, samsettum blómskipunum.
Nytjar
Plantan var notuð sem lækningajurt. Fersk blöð eru hollt kálmeti.Úr blöðum hans fæst grænn og sterkgulur litur.
Fardagagras er gamalt nafn sem bendir til að menn hafi fyrst tekið blöðin um fardagaleytið
Greiningarlykill
Blómskipan

Klasi/ax
Blómkróna

4 krónublöð
Blómlitur

Annað
Blaðskipan

Stakstæð
Blaðlögun

Venjuleg heil
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt