Túnfífill
Taraxacum Weber
Lýsing
Blöðin eru í stofnhvirfingu, oftast mikið flipuð en örsjaldan heil.Blóm sitja í stórum, gulum körfum. Þær standa á holum blómskipunarleggjum sem vaxa úr blaðöxlunum. Öll blóm í körfunni tungukrýnd. Karfan lokast að blómgun lokinni og opnast aftur sem biðukolla. Aldin eru með legglöngu svifi.
Nytjar
Seyði af rótum þótti gott við lifrarveiki og gallstíflum. Einnig voru þær þurrkaðar og malaðar og notaðar sem kaffibætir. Blöðin voru einnig notuð í lækningaskyni.Blöðin eru góð í salöt en þurfa að liggja í nokkrar mínútur í rennandi vatni áður en þau eru soðin..
Greiningarlykill
Blómskipan

Karfa/kollur
Blómkróna

Annað
Blómlitur

Gulur
Blaðskipan

Stofnhvirfing
Blaðlögun

Sepótt/Flipótt blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt