Fjalldalafífill
Geum rivale
Lýsing
Stofnblöð eru á löngum legg, fjöðruð og bilbleðlótt, með 2 eða 3 aðalbleðla og smærri þar á milli (minna á kálblöð). Stöngulblöð 3-bleðlótt, flipar tenntir. Með axlablöð.Blóm eru stór og drúpa, dumbrauð á lit. Krónublöðin eru í fyrstu rauðgul en verða holdrauð, þá er á líður.
Nytjar
Rót fjalldalafífils geymir ýmis ilm- og bragðefni sem notuð voru sem krydd bæði í mat og drykk.Hún þykir styrkjandi, köldueyðandi og svitaleiðandi.
Greiningarlykill
Blómskipan

Annað
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Rauðleitur
Blaðskipan

Stakstæð
Blaðlögun

Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir

Handstrengjótt