Gullmura

Potentilla crantzii

Lýsing

Blöðin eru 3–5 fingruð, gróftennt, oftast hærð. Upp úr jarðstönglinum vaxa venjulega nokkrir smáhærðir, greindir stönglar.

Blóm 1,5–2,0 cm að þvermáli. Krónublöðin eru um helmingi lengri en bikarblöðin. Neðst á krónublöðum eru rauðgulir blettir og er tegundin auðþekkt á þeim. Oft talin sóleyjartegund af ófróðum

Greiningarlykill


Blómskipan
Einstakt blóm
Blómkróna
5 krónublöð
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Handstrengjótt