Kanínan er spendýr og nagdýr.
Kanína er af héraætt. Hún er frábrugðin öðrum nagdýrum að því leyti að hún er með fjórar tennur í efri skolti en önnur nagdýr eru með tvær. Kanínan er sífellt að naga eitthvað. Ef hún nagaði ekki svona mikið myndu tennur hennar vaxa stöðugt og gætu farið í gegnum neðri góminn.
Kanínan er upprunnin á Spáni og í Suður-Frakklandi. Maðurinn á stærstan þátt í því að nú finnast kanínur víða í Evrópu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Ræktun á kanínum hefur verið lítil hér á landi en fyrir nokkrum árum hófu bændur að rækta angórukanínur.
Fengitími
Allt árið.
Meðgöngutími
Um 28-33 dagar eða fjórar til fimm vikur.
Fjöldi afkvæma
Kanínan er mjög frjósöm. Hún getur gotið nokkrum sinnum á ári, 3–5 ungum í hvert sinn.
Ungarnir fæðast hárlausir, blindir og tannlausir. Þeir eru um 40–45 g að þyngd. Eftir um 10 daga opna þeir augun. Þeir yfirgefa síðan heimili sín þegar þeir eru fjögurra vikna gamlir, þá komnir með feld, sjón og tennur.
Móðirin hittir afkvæmi sín einu sinni á dag og leyfir þeim að sjúga í stutta stund.
Hér á landi eru nokkrar tegundir kanína. Má þar nefna landkanínu en hún, ásamt dvergkanínu, er höfð sem gæludýr.
Ræktun kanína á sér ekki langa sögu hér á landi en nú er farið að rækta hér þrjár tegundir, það eru feldkanínur, holdakanínur og angórukanínur. Feldkanína og angórukanína eru ræktaðar til að nýta feldinn. Holdakanínan er ræktuð til matar.
Talið er að til séu u.þ.b. 160 kanínutegundir í heiminum og af hverri tegund eru til mörg litaafbrigði.
Kanínan sér mjög vel í kringum sig vegna þess að hún er með augun á hliðunum á höfðinu. Hún þarf því lítið að snúa sér til að sjá til hliða.
Kanínan er félagsdýr og grefur sér holur ofan í jörðina þar sem margar kanínur halda saman. Kanínur grafa sér holur til að forðast óvini sína, til að skýla sér fyrir kulda og roki og til að búa ungum sínum öruggan stað.
Kanínur í Evrópu lifa margar saman í hóp og holurnar þeirra nefnast kanínubyggðir.
Ýmis not eru af kanínum, má þar nefna kjöt, feld og svo hárin af angórukanínunum.
Einnig gleðja þær marga sem gæludýr.
Kanínur eru frekar ný tegund í lífríki Íslands og ekki hafa skapast orðatiltæki þeim tengd.
Farðu yfir bláu hringina til að fá meiri upplýsingar.